Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   sun 17. júlí 2016 17:00
Elvar Geir Magnússon
Bestur í Inkasso: Fátt sem toppar svona leiki
Leikmaður 11. umferðar: Hallgrímur Mar Steingrímsson - KA
Hallgrímur í leiknum gegn Þór.
Hallgrímur í leiknum gegn Þór.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Hallgrímur var valinn maður leiksins.
Hallgrímur var valinn maður leiksins.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, er leikmaður umferðarinnar í Inkasso-deildinni. Hann lagði upp eina mark leiksins þegar KA vann erkifjendur sína í Þór fyrir framan 1.620 áhorfendur á Akureyrarvelli.

„Það er alltaf gaman að spila við Þór, sérstaklega í íslandsmóti og þegar það eru svona margir áhorfendur. Það er held ég fátt sem toppar það," segir Hallgrímur en talað hefur verið um að sigurmark leiksins hafi verið hreinræktað frá Húsavík.

„Ég tek hornspyrnu minnir mig og þeir hreinsa burt og Almarr fær held ég boltan sendir hann til baka á Hrannar, sem er svo lítill að hann fær aldrei að koma nálægt boxinu í hornum og hann setur hann strax út á mig hægra megin og ég kem með fyrirgjöf á kollinn á Elfari sem skallar hann í netmöskvana," segir Hallgrímur léttur.

Hægt er að sjá markið sem Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði hér fyrir neðan

„Það er virkilega sætt að hafa unnið þennan leik, það er mikið undir og mikil pressa á að vinna þessa leiki hjá báðum liðum. Það er mjög erfitt að kyngja því þegar maður tapar þessum leikjum."

KA er með fimm stiga forystu á toppi deildarinnar þegar keppni er hálfnuð. Hvernig lýst Hallgrími á baráttuna fyrir seinni helming tímabilsins?

„Mér lýst bara mjög vel á hana, þetta verður barátta alveg fram í síðustu umferð held ég. Fimm stiga forysta er ekki neitt í þessu, hlutirnir geta breyst fljótt. Grindavík, Leiknir, Keflavík og Þór eru öll með góð lið, svo það þýðir ekkert að gefa neitt eftir í þessu. Við eigum mikið inni spilalega séð og náum vonandi að stíga meira upp í seinni umferðinni og klára mótið á toppnum."

Hallgrímur hefur verið að spila í nýrri stöðu á þessu tímabili og verið í öðru hlutverki en hann er vanur.

„Ég hef aldrei spilað neitt annað en vinstra megin í gegnum minn feril og er núna komin í þessa svokallaða holu. En ég er búinn að vera ánægður með mig fyrir utan fyrst 3-4 leikina. En ég á enn mikið inni samt. Verst bara hvað maður þarft stundum að hlaupa mikið í þessu nýja hlutverki," segir Hallgrímur kíminn.

Verbúð 11 gefur verðlaun
Leikmaður umferðarinnar í Inkasso-deildinni fær 15 þúsund króna gjafabréf frá veitingastaðnum Verbúð 11 sem og kassa af Pepsi Max.



Sjá einnig:
Bestur í 10. umferð - Sveinn Fannar Sæmundsson (Fjarðabyggð)
Bestur í 9. umferð - Alexander Veigar Þórarinsson (Grindavík)
Bestur í 8. umferð - Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Bestur í 7. umferð - Alexander Helgason (Haukar)
Bestur í 6. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Bestur í 5. umferð - Ivan Bubalo (Fram)
Bestur í 4. umferð - Gunnar Örvar Stefánsson (Þór)
Bestur í 3. umferð - Jósef Kristinn Jósefsson (Grindavík)
Bestur í 2. umferð - Arnar Aðalgeirsson (Haukar)
Bestur í 1. umferð - Stefán Ómar Magnússon (Huginn)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner