Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
laugardagur 27. apríl
Besta-deild kvenna
þriðjudagur 23. apríl
föstudagur 19. apríl
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 12. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 8. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 5. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 1. apríl
Meistarar meistaranna
sunnudagur 31. mars
Enska úrvalsdeildin
föstudagur 29. mars
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
fimmtudagur 28. september
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 26. apríl
Championship
QPR - Leeds - 19:00
Bundesligan
Bochum - Hoffenheim - 18:30
Serie A
Frosinone - Salernitana - 18:45
La Liga
Real Sociedad - Real Madrid - 19:00
Elitettan - Women
Jitex W - Lidkoping W - 17:00
Sunnana W - Malmo FF W - 17:30
banner
fim 11.apr 2019 10:00 Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 11. sæti: Víkingur R.

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Víkingur endi í 11. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Fréttaritarar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Víkingur endar í 11. sæti ef spáin rætist.

Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. Víkingur R. 25 stig
12. HK 12 stig

Um liðið: Víkingur byrjaði tímabilið í fyrra afar illa og var lengi að rétta úr kútnum. Liðið endaði í 9. sæti Pepsi-deildarinnar með 25 stig undir stjórn Loga Ólafssonar. Víkingar náðu í sex stig í Lengjubikarnum þar sem þeir náðu í tvo sigra gegn Inkasso-liðum. Nú er nýr þjálfari í brúnni.

Þjálfari - Arnar Gunnlaugsson: Arnar var aðstoðarþjálfari Loga í fyrra en tekur nú við sem aðalþjálfari. Þetta er hans fyrsta aðalþjálfarastarf síðan hann stýrði ÍA með bróður sínum. Hann hefur sterkar skoðanir á því hvernig hann vill spila fótbolta, vill að boltinn sé látinn ganga eftir jörðinni og það verður fróðlegt að sjá hvernig liðinu vegnar í nýjum áherslum.

Styrkleikar: Ef Víkingar fá Kára Árnason heim og Sölvi Geir helst heill þá er hafsentaparið styrkleiki hjá Víkingum. Þrátt fyrir miklar breytingar þá helst ennþá kjarni sem hefur verið lengi hjá félaginu.

Veikleikar: Heimavöllur Víkinga í fyrra gaf þeim ekki nægilega mikið og það er spurning hvort nýtt undirlag hjálpi þeim að fjölga stigum á heimavelli en þeir eru að fá gervigras. Þeir unnu aðeins þrjá leiki af tólf í Víkinni í fyrra. Sóknarleikurinn gæti verið veikleiki í sumar en liðinu vantar afgerandi markaskorara.

Lykilmenn: Sölvi Geir Ottesen og markvörðurinn Þórður Ingason sem kom frá Fjölni. Tveir af reynslumestu leikmönnum liðsins sem þurfa að binda saman varnarleik liðsins svo ekki fari illa. Sölvi Geir lék ekkert með Víkingum í undirbúningsmótunum fyrir tímabilið og það skiptir miklu máli fyrir Víkinga að hann spili ekki færri leiki en hann gerði síðasta sumar, 13 talsins.

Gaman að fylgjast með: Júlíus Magnússon. Það verður spennandi að sjá hvernig Júlíus stendur sig á sínu fyrsta ári í meistaraflokki á Íslandi. Unglingalandsliðsmaður sem kominn er til félagsins frá Heerenveen í Hollandi en þaðan fór hann frá Víkingi í janúar 2015.

Spurningamerkið: Hver á að sjá um að skora fyrir Víkinga í sumar? Geoffrey Castillion lék átta leiki með þeim síðasta sumar og endaði sem markahæstur með sex mörk, jafn mörg og Nikolaj Hansen sem lék 21 leik. Þá eru Arnþór Ingi og Alex Freyr farnir í KR en þeir skoruðu samtals sjö mörk í deildinni í fyrra.

Völlurinn: Víkingur leikur fyrstu heimaleiki sína á Eimskipsvellinum í Laugardal en koma svo aftur í Víkina og spila á glænýjum gervigrasvelli. Stúkan er í virkilega góðri stærð fyrir íslenskar aðstæður. Svæðið í Víkinni er á mjög skjólsælum stað og alltaf fjör að kíkja á völlinn í góðu veðri. Grasið hefur undanfarin ár litið illa út í byrjun tímabils en nú verður breyting á.

Þjálfarinn segir - Arnar Gunnlaugsson
„Ef ég á að segja alveg eins og er, þá kemur þessi spá mér á óvart. Þetta er bara fall. Miðað við leiki vetrarins þá skil ég þetta af einhverju leyti. Ég hef sagt það áður og segi það enn, það er verið að lesa of mikið í þessa leiki. Lið eru að spila á allt öðrum leikmönnum en spila í sumar og mikið af breytingum á milli leikja. Ég er voðalega lítið fyrir því að spá fyrir um einhver sæti og setja markmið varðandi einhver sæti. Markmiðin eru að vinna hvern einasta leik og sjá hverju það skilar okkur. Ég get líka sagt að markmiðið er klárlega að falla ekki."

Komnir:
James Mack frá Vestra
Júlíus Magnússon frá Heerenveen
Þórður Ingason frá Fjölni
Atli Hrafn Andrason frá Fulham

Farnir:
Alex Freyr Hilmarsson í KR
Andreas Larsen í Trelleborgs
Aris Vaporakis
Arnþór Ingi Kristinsson í KR
Geoffrey Castillion í FH (var á láni)
Jörgen Richardsen
Milos Ozegovic
Morice Mbaye
Valdimar Ingi Jónsson í Fjölni
Aron Már Brynjarsson í Torns IF í Svíþjóð

Fyrstu fimm leikir Víkings:
26. apríl Valur - Víkingur R.
6. maí Víkingur R. - FH
11. maí Breiðablik - Víkingur R.
15. maí Víkingur R. - Stjarnan
19. maí ÍBV - Víkingur R.

Sjá einnig:
Hin hliðin - Atli Hrafn Andrason
Niðurtalningin: Víkingur R. - Dofri Snorra og Davíð Atla.

Leikmenn Víkings sumarið 2019:
1 Þórður Ingason
2 Sindri Scheving
3 Logi Tómasson
4 Gunnlaugur Hlynur Birgisson
5 Mohamed Dide Fofana
6 Halldór Smári Sigurðsson
7 James Charles Mack
8 Sölvi Geir Ottesen
9 Erlingur Agnarsson
10 Rick Ten Voorde
11 Dofri Snorrason
12 Emil Auðunsson
13 Viktor Andrason
14 Bjarni Páll Rúnolfsson
17 Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
18 Örvar Eggertsson
19 Þórir Rafn Þórisson
20 Júlíus Magnússon
23 Nikolaj Hansen
24 Davíð Örn Atlason
26 Kolbeinn Theódórsson
28 Halldór Jón Sigurður Þórðarson
29 Sölvi Daníelsson
31 Georg Bjarnason
32 Francisco Miguel M.Mancilla
77 Atli Andrason

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Arnar Helgi Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson, Daníel Geir Mortiz, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Gunnar Birgsson, Hafliði Breiðfjörð, Magnús Már Einarsson, Tómas Þór Þórðarson
Athugasemdir
banner