Umboðsmaður Alberts Guðmundssonar hefur boðið AC Milan að fá leikmanninn í sumarglugganum. Þetta segir Daniele Longo, blaðamaður hjá CalcioMercato í dag.
Íslenski landsliðsmaðurinn var á láni hjá Fiorentina frá Genoa á síðustu leiktíð.
Fiorentina greiddi 8 milljónir evra fyrir lánssamninginn og á enn möguleika á að gera skiptin varanleg fyrir 17 milljónir evra, en talið er ólíklegt að félagið geri það.
Samkvæmt Longo er Fiorentina að skoða þann möguleika á að halda honum áfram á láni.
Atalanta, Bologna og Roma hafa öll áhugi á Alberti og eru búin að setja sig í samband við Genoa og umboðsmann hans. Ekki vantar áhugann og nú er bara spurning hvar hann endar.
Longo sagði þá um leið frá því að umboðsmaður Alberts hafi boðið Milan að kaupa hann og er Genoa sagt meira en reiðubúið til að fara í viðræður við Milan, en það hefur verið lítið um svör frá Mílanó-liðinu.
Albert, sem fagnaði 28 ára afmæli sínu á dögunum, glímdi við erfið meiðsli á síðasta tímabili og tókst aðeins að spila 24 leiki og skora 6 mörk í Seríu A.
Athugasemdir