Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 16:30
Brynjar Ingi Erluson
Sagður tilbúinn að hafna Arsenal til að fara til Liverpool
Marc Guehi gæti fært sig um set í sumar
Marc Guehi gæti fært sig um set í sumar
Mynd: EPA
Marc Guehi, fyrirliði Crystal Palace á Englandi, er sagður tilbúinn til þess að hafna Arsenal til að fara til Liverpool í sumar.

Guehi er 24 ára gamall og á ár eftir af samningi sínum hjá Palace, en Lundúnafélagið vill heldur selja hann í sumar en að missa hann frítt á næsta ári.

Telegraph og Fabrizio Romano segja Guehi ofarlega á óskalista Liverpool til að fylla í skarðið sem Jarell Quansah mun skilja eftir sig, en Quansah er á leið til Bayer Leverkusen fyrir 35 milljónir punda.

Liverpool er sagt vera að undirbúa tilboð í Guehi og mun líklega byrja á að þreifa fyrir sér með tilboði sem nemur um 30 milljónum punda, en Palace er talið vilja að minnsta kosti 50 milljónir.

Sun segir að Guehi sé mjög spenntur fyrir hugmyndinni að ganga í raðir Liverpool og að hann sé tilbúinn að hafna Arsenal til þess að ganga í raðir Englandsmeistarana.

Romano hefur endurtíst færslu sinni um áhuga Liverpool á Guehi og gætu því frekari fréttir borist af honum á næstunni.

Guehi, sem er uppalinn hjá Chelsea, hefur spilað mikilvæga rullu í liði Palace síðan hann kom til félagsins fyrir fjórum árum og var í vörn liðsins er það vann bikarinn í fyrsta sinn í sögunni í síðasta mánuði.

Miðvörðurinn á 23 A-landsleiki fyrir England.
Athugasemdir
banner