8. umferðin í Inkasso-deild karla hefst í kvöld með leik Þróttar R. og Fjölni í Laugardalnum. Heimamenn geta náð Fjölni á stigum með sigri í kvöld á meðan Fjölnismenn geta tyllt sér á toppinn með sigri.
Umferðin heldur síðan áfram annað kvöld og lýkur á laugardaginn með þremur leikjum. Davíð Örn Atlason leikmaður Víkings R. var með einn leik réttan í 7. umferðinni en nú er komið að Herði Inga Gunnarssyni leikmanni ÍA að spá fyrir um 8. umferðina.
Umferðin heldur síðan áfram annað kvöld og lýkur á laugardaginn með þremur leikjum. Davíð Örn Atlason leikmaður Víkings R. var með einn leik réttan í 7. umferðinni en nú er komið að Herði Inga Gunnarssyni leikmanni ÍA að spá fyrir um 8. umferðina.
Þróttur R. 2 - 3 Fjölnir (19:15 í kvöld)
Það verður samba bolti í laugardalnum, en ef Beggi Ó. drekkur græna ofurboostinn sinn í dag þá setur hann sigurmarkið og rífur sig svo úr að ofan.
Njarðvík 1 - 0 Afturelding (19:15 á morgun)
Græni herinn tekur öll stigin í þessum leik eftir að Arnar Helgi setur hann með hjólhestaspyrnu.
Haukar 2 - 0 Leiknir R. (19:15 á morgun)
Einn allra erfiðasti heimavöllur landsins, því verður þetta frekar þæginleg sigling með Rauða ljónið Óskar Sigþórsson fremstan í fylkingu.
Víkingur Ó. 3 - 1 Fram (14:00 á laugardag)
Ejub’s army lætur ekki bjóða sér það að tapa tveimur leikjum í röð á heimavelli. Fram er 1-0 yfir í hálfleik en þá tekur gamli skólinn hárblásarann í hálfleiknum og Grétar Snær setur óvænta þrennu og fagnar með undarlegum hætti.
Grótta 1 - 2 Magni (14:00 á laugardag)
Gunnar Örvar setur tvö með meðvind og leggja rútunni í seinni hálfleik og klára þetta.
Þór 2 - 1 Keflavík (16:00 á laugardag)
Toppslagur fyrir norðan en hetjan úr hverfinu Alvaro skilur milli liðanna og setur tvær neglur. Það sýður allt upp úr í lokin og Adam Pálsson fær að líta heimskulegt rautt.
Sjá fyrri spámenn:
Sindri Snær Magnússon (3 réttir)
Sigurður Egill Lárusson (3 réttir)
Björgvin Stefánsson (3 réttir)
Aron Bjarnason (2 réttir)
Davíð Örn Atlason (1 réttur)
Arnar Sveinn Geirsson (1 réttur)
Athugasemdir