Jesus gæti farið frá Arsenal - Möguleg stjóraskipti hjá Man Utd og Bayern - Dortmund vill halda Sancho
   fös 12. október 2018 21:21
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Salah skoraði úr hornspyrnu og fór meiddur af velli
Mohamed Salah
Mohamed Salah
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah fór meiddur af velli er Egyptaland vann 4-1 sigur á Swaziland í kvöld. Hann skoraði þá ótrúlegt mark úr hornspyrnu.

Salah skoraði eitt af mörkum Egypta í sigrinum en það var fyrsta mark hans í dágóðan tíma. Markið kom undir lok fyrri hálfleiks úr hornspyrnu.

Hann fór meiddur af velli undir lok leiks en hann fékk krampa í kálfann og neyddist því að fara útaf.

Stuðningsmenn Liverpool óttuðust að hann væri alvarlega meiddur en fréttir frá Egyptalandi benda til þess að meiðslin séu ekki af alvarlegum toga.

Salah meiddist á öxl í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í maí og var hann töluvert frá vegna meiðslanna.




Athugasemdir
banner
banner