Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
Óli Kri: Sólin kemur upp á morgun og það eru fleiri verkefni framundan
Fanndís Friðriks: Þetta er bara ný keppni og okkur langar að vinna þennan titil
Arnar tekur erfiðar ákvarðanir í haust: Ætla að komast á HM með eða án ykkar
Willum: Við fengum fínustu færi og vorum óheppnir
„Alvaran byrjar í haust og þá fer þetta að telja"
Daníel Leó: Vorum heppnir að fá ekki á okkur annað
Donni: Ég er gráti næst
„Segja mjög heimskulega hluti við mann sem er með öðruvísi húðlit en þeir"
„Þetta er ekki eins og skautahlaup, það eru enginn stig fyrir stíl"
Gunnar Már: Máttum bara ekki tapa þessum leik
Jón Óli: Skítum svo upp á bak í næsta leik
Frosti: Heiðar var að pæla fyrir leik hvernig ég ætlaði að útfæra þessi skæri
Bjarni: Þú verður að ráða sagnfræðing í það
Alli Jói: Það getur örugglega verið margt til í því
„Sérstakt að það væri í lagi að hann fái höfuðhögg en ekki í hina áttina"
„Kærkomið að snúa þessu við og sýna stuðningsmönnum okkar að við erum á réttu róli"
Siggi talar um líkamsárás: Erum að slá heimsmet í meiðslum
Hemmi Hreiðars: Við erum með leikinn í höndum okkar
Halli Hróðmars: Stærra en fólk gerir sér almennt grein fyrir
Sverrir Ingi: Meistaradeildin, komast á HM og grískt brúðkaup á dagskrá
   mið 05. júlí 2017 12:22
Elvar Geir Magnússon
Sandra María: Auðvitað var þetta leiðinlegt
Kvenaboltinn
Sandra spilar fyrir Þór/KA, topplið Pepsi-deildar kvenna.
Sandra spilar fyrir Þór/KA, topplið Pepsi-deildar kvenna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það kom upp fjölmiðlafár í kringum Söndru Maríu Jessen í síðustu viku eftir að hún setti umdeild „læk" á Twitter sem Andri Rúnar Bjarnason, markahrókur Grindavíkur, gagnrýndi.

Fótbolti.net spurði Söndru á landsliðsæfingu í morgun hvernig það hafi verið að takast á við þessa fjölmiðlaumræðu.

„Þetta var alveg pínu sjokk en þetta er eitthvað sem við erum ekki að hugsa út í núna, þetta er búið og við erum að einbeita okkur að EM. Þetta er í fortíðinni," segir Sanra.

„Auðvitað var þetta leiðinlegt en við tækluðum þetta strax."

Sandra er í íslenska landsliðshópnum sem ferðast til Hollands eftir níu daga á Evrópumótið í Hollandi. Mikil spenna er að byggjast upp fyrir mótið.

„Það er kominn góður fiðringur og andrúmsloftið milli leikmanna og starfsmanna er rosalega gott," segir Sandra en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.

Sjá einnig:
Freysi um like hjá Söndru á Twitter: Það eru til stærri vandamál
Athugasemdir
banner