Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   mán 26. ágúst 2024 20:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Atletico vill fá Nunes á láni frá Man City
Mynd: EPA

Atletico Madrid skoðar möguleikann að fá Matheus Nunes á láni frá Manchester City en The Athletic greinir frá þessu.


Man City hefur ekki fengið tilboð í portúgalska miðjumanninn en talið er að félagið sé tilbúið að láta hann fara eftir að Ilkay Gundogan gekk aftur til liðs við félagið frá Barcelona á dögunum.

Nunes gekk til liðs við City frá Wolves síðasta sumar en félagið borgaði rúmar 50 milljónir punda fyrir þennan 25 ára gamla miðjumann.

Hann kom við sögu í 28 leikjum í öllum keppnum fyrir City á síðustu leiktíð. Hann kom inn á sem varamaður í 4-1 sigri City gegn Ipswich um helgina en kom ekkert við sögu í sigri liðsins gegn Chelsea í fyrstu umferð.


Athugasemdir
banner
banner