Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   mán 26. ágúst 2024 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fór í njósnaferð um liðna helgi og fylgdist með Trafford
James Trafford.
James Trafford.
Mynd: EPA
Paul Mitchell, yfirmaður fótboltamála hjá Newcastle, fór í stutt ferðalag yfir til Sunderland um liðna helgi.

Hann var mættur á Stadium of Light til að fylgjast með leik Sunderland gegn Burnley.

Ástæðan fyrir heimsókn hans til Sunderland var markvörðurinn James Trafford sem spilar með Burnley. Newcastle hefur áhuga á að kaupa hann.

Samkvæmt Daily Mail þá hefur Newcastle áhuga á því að kaupa Trafford áður en glugginn lokar á föstudag.

Newcastle gerði 16 milljón punda tilboð í hinn 21 árs gamla Trafford fyrr í sumar, en félagið hefur enn mikinn áhuga á því að landa honum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner