Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
   mán 26. ágúst 2024 21:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Vlahovic með tvennu í öruggum sigri - Como nældi í stig
Mynd: EPA

Juventus er eina liðið sem er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar í ítölsku deildinni eftir sigur á Verona í kvöld.


Dusan Vlahovic skoraði tvennu í öruggum sigri liðsins. Hann fékk þrjá varnarmenn á fullum krafti á móti sér en tókst að skjóta boltanum í netið og koma Juventus í forystuna áður en þeim tókst að stöðva serbneska framherjann.

Hinn 21 árs gamli Nicolo Savona bætti öðru markinu við áður en Vlahovic innsiglaði sigurinn með marki úr vítaspyrnu.

Nýliðarnir í Como eru komnir á blað eftir jafntefli gegn Cagliari á útivelli. Roberto Piccoli kom Cagliari yfir undir lok fyrri hálfleiks en Patrick Cutrone jafnaði metin snemma í þeim síðari og tryggði Como sitt fyrsta stig.

Sergi Roberto spilaði sinn fyrsta leik fyrir Como í kvöld en hann gekk til liðs við félagið á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Barcelona rann út í sumar. Maximo Perrone, sem er á láni frá Man City, lék allan seinni hálfleikinn.

Cagliari 1 - 1 Como
1-0 Roberto Piccoli ('44 )
1-1 Patrick Cutrone ('53 )

Verona 0 - 3 Juventus
0-1 Dusan Vlahovic ('28 )
0-2 Nicolo Savona ('39 )
0-3 Dusan Vlahovic ('53 , víti)


Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 3 2 1 0 8 2 +6 7
2 Juventus 3 2 1 0 6 0 +6 7
3 Torino 3 2 1 0 5 3 +2 7
4 Udinese 3 2 1 0 4 2 +2 7
5 Verona 3 2 0 1 5 3 +2 6
6 Napoli 3 2 0 1 5 4 +1 6
7 Empoli 3 1 2 0 3 2 +1 5
8 Lazio 3 1 1 1 6 5 +1 4
9 Parma 3 1 1 1 4 4 0 4
10 Genoa 3 1 1 1 3 4 -1 4
11 Fiorentina 3 0 3 0 3 3 0 3
12 Atalanta 3 1 0 2 5 6 -1 3
13 Lecce 3 1 0 2 1 6 -5 3
14 Milan 3 0 2 1 5 6 -1 2
15 Monza 3 0 2 1 2 3 -1 2
16 Cagliari 3 0 2 1 1 2 -1 2
17 Roma 3 0 2 1 1 2 -1 2
18 Bologna 3 0 2 1 2 5 -3 2
19 Venezia 3 0 1 2 1 4 -3 1
20 Como 3 0 1 2 1 5 -4 1
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner