Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   mán 26. ágúst 2024 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Liverpool blandar sér í baráttuna um Chiesa
Mynd: Getty Images

Liverpool hefur sett sig í samband við Juventus en enska félagið vill fá Federico Chiesa. Fabrizio Romano greinir frá þessu á X.


Þessi 26 ára gamli ítalski sóknarmaður má fara frá Juventus og hefur verið orðaður við fjölmörg félög á Englandi.

Það hefur lítið sem ekkert gerst á leikmannamarkaðnum hjá Liverpool í sumar en Fabio Carvalho og Sepp van den Berg hafa yfirgefið félagið og gengið til liðs við Brentford.

Liverpool vildi fá spænska miðjumanninn Martin Zubimendi frá Real Sociedad en leikmaðurinn hafnaði tilboði frá enska félaginu.

Juventus er þessa stundina að spila gegn Verona og Chiesa er ekki í hópnum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner