Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
   mán 26. ágúst 2024 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Palace gerir Arsenal 30 milljón punda tilboð
Mynd: EPA
Crystal Palace hefur lagt fram 30 milljóna punda tilboð í Eddie Nketiah. Frá þessu greina enskir fjölmiðlar í dag.

Tilboðið hljóðar upp á 25 milljóna punda staðgreiðslu og svo fimm milljónir punda í árangurstengdum greiðslum.

Nketiah er framherji sem er á eftir Kai Havertz og Gabriel Jesus hjá Arsenal. Hann vill fá að spila meira og er því líklegur til þess að samþykkja tilboð Palace.

Hann er 25 ára Englendingur sem skoraði sex mörk í 37 leikjum í öllum keppnum með Arsenal í fyrra. Arsenal var að vonast eftir um 50 milljónum punda fyrir Nketiah í sumar en þarf að sætta sig við talsvert lægri upphæð.
Athugasemdir
banner
banner
banner