Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   mán 26. ágúst 2024 15:13
Elvar Geir Magnússon
Zouma að verða liðsfélagi Jóa Berg
Mynd: Getty Images
Kurt Zouma varnarmaður West Ham er á leið í læknisskoðun hjá Al-Orobah í Sádi-Arabíu. Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson gekk nýlega í raðir félagsins.

Zouma var á leið í félag í Sameinuðu arabísku furstadæmunum fyrr í sumar en féll þar á læknisskoðun.

West Ham gaf Zouma leyfi til að vera áfram í Mið-Austurlöndum til að reyna að ná í annan samning.

Zouma er franskur varnarmaður sem hefur spilað 103 leiki fyrir West Ham síðan hann kom frá Chelsea 2021.

Hann var í byrjunarliði West Ham í sigrinum gegn Fiorentina í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar 2023 og var gerður að fyrirliða liðsins eftir að Declan Rice var seldur til Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner