Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
   þri 27. ágúst 2024 12:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bajcetic líka á leið til Lijnders í Salzburg
Stefan Bajcetic.
Stefan Bajcetic.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Stefan Bajcetic er líklega að ganga í raðir RB Salzburg í Austurríki á láni frá Liverpool.

Bajcetic er gífurlega efnilegur leikmaður en hann hefur átt erfitt með meiðsli. Því spilaði hann ekki mikið á síðustu leiktíð.

Fabrizio Romano segir frá því að félög á Spáni hafi viljað fá Bajcetic en Salzburg er að vinna kapphlaupið um hann.

Það er kannski ekki skrítið þar sem Bajcetic þekkir þjálfara Salzburg vel. Stjóri Salzburg, Pep Lijnders, var aðstoðarmaður Jurgen Klopp hjá Liverpool og hefur miklar mætur á Bajcetic.

Salzburg keypti nýverið Bobby Clark frá Liverpool og núna virðist Bajcetic líka vera á leið til félagsins.
Athugasemdir
banner
banner