Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   þri 27. ágúst 2024 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Barcelona tókst að skrá Olmo - Klár í slaginn í kvöld
Mynd: Barcelona

Dani Olmo getur loksins spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið í kvöld en félagið hefur verið í vandræðum með að skrá hann í hópinn.


Hann hefur ekki getað spilað fyrstu tvo leiki tímabilsins þar sem fjárhagsreglur spænsku deildarinnar hafa komið í veg fyrir það en Barcelona hefur glímt við fjárhagsvandræði í dágóðan tíma.

Spænskir fjölmiðlar hafa greint frá því að málið sé leyst og hann getur því verið í liðinu þegar Barcelona mætir Rayo Vallecano í kvöld.

Olmo gekk til liðs við Barcelona frá RB Leipzig í Þýskalandi. Kaupverðið er 55 milljónir evra en það getur hækkað um sjö milljónir með árangurstengdum greiðslum.


Athugasemdir
banner
banner
banner