Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   þri 27. ágúst 2024 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Henderson og Uxinn sameinaðir á nýjan leik?
 Alex Oxlade-Chamberlain.
Alex Oxlade-Chamberlain.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hollenska félagið Ajax er í viðræðum um kaup á Alex Oxlade-Chamberlain núna áður en félagaskiptaglugginn lokar.

Ajax ætlar að leggja fram lánstilboð í Oxlade-Chamberlain en hann er núna á mála hjá Besiktas í Tyrklandi.

Möguleiki er á því að Jordan Henderson og Uxinn verði sameinaðir á nýjan leik en þeir voru liðsfélagar hjá Liverpool í nokkur ár. Henderson var fyrirliði Liverpool á þeim tíma en hann gekk í raðir Ajax í janúar síðastliðnum.

Önnur félög í Evrópu eru líka að fylgjast með Oxlade-Chamberlain og hefur hann meðal annars verið orðaður við Brentford.

Hann gekk í raðir Besiktas á frjálsri sölu síðasta sumar en hann spilaði 30 keppnisleiki með liðinu á síðustu leiktíð og skoraði fjögur mörk.

Einnig er Wout Weghorst, sóknarmaður Burnley, orðaður við Ajax.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner