Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   þri 27. ágúst 2024 11:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kepa framlengir við Chelsea og fer til Bournemouth
Mynd: EPA
Chelsea er að lána Kepa Arrizabalaga til Bournemouth. Hann fer í læknisskoðun hjá félaginu í dag.

Samningur spænska markvarðarins átti að renna út næsta sumar en hann mun framlengja um eitt ár. Samkvæmt TalkSport tekur hann á sig launalækkun svo þessi skipti geta gengið í gegn.

Tekið er fram að engar kröfur séu gerðar á Bournemouth um að kaupa Kepa að láninu loknu.

Hann fer í samkeppni við Neto og Mark Travers um markvarðarstöðuna. Hjá Bournemouth hittir hann fyrir stjórann Andoni Iraola en þeir léku saman hjá Athletic Bilbao á sínum tíma.

Kepa er 29 ára og er dýrasti markvörður sögunnar. Árið 2018 greiddi Chelsea 72 milljónir punda fyrir Kepa sem hefur aldrei náð að heilla almennilega á Stamford Bridge. Á síðasta tímabili var hann á láni hjá Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner