Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   þri 27. ágúst 2024 10:54
Elvar Geir Magnússon
Kim Kardashian stal senunni á Bernabeu
Kim Kardashian fékk bolamynd af sér með Florentino Perez.
Kim Kardashian fékk bolamynd af sér með Florentino Perez.
Mynd: X
Real Madrid vann 3-0 sigur gegn Real Valladolid í spænsku deildinni á sunnudag en það var þó bandaríska raunveruleikastjarnan Kim Kardashian sem stal senunni.

Kardashian var á leiknum í boði Vinicius Junior, stórstjörnu Real Madrid, en Saint West sonur hennar er mikill aðdáandi leikmannsins og leiddi hann inn á völlinn fyrir leik.

Athygli vakti að Kardashian og Florentino Perez forseti Real Madrid náðu gríðarlega vel saman en Perez er vanur því að taka á móti þekktum einstaklingum á Santiago Bernabeu leikvangnum.

Myndir af þeim saman hafa slegið í gegn á samfélagsmiðlum.

Eftir leikinn fór Vini Jr. svo í smá boltaleik ásamt Saint West og fleiri hressum krökkum.
Athugasemdir
banner
banner
banner