Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
   þri 27. ágúst 2024 18:27
Brynjar Ingi Erluson
McTominay til Napoli - „Here we go!“
Mynd: Getty Images
Skoski miðjumaðurinn Scott McTominay er á leið til ítalska félagsins Napoli fyrir 30 milljónir evra. Ítalski blaðamaðurinn fullyrðir skiptin með frasa sínum „Here we go!“.

Manchester United er að ganga frá kaupum á úrúgvæska miðjumanninum Manuel Ugarte frá Paris Saint-Germain og mun hann koma inn í hópinn fyrir McTominay.

McTominay er 27 ára gamall og spilað með United alla sína tíð en hann mun nú hefja nýtt ævintýri hjá Napoli.

Félögin hafa náð saman um 30 milljóna evra kaupverð og mun United fá hluta af næstu sölu leikmannsins.

Skotinn mun ferðast til Napoli á næsta sólarhringnum til að gangast undir lækniskoðu eins og Romelu Lukaku, sem er að koma til félagsins frá Chelsea.

Napoli er einnig að ganga frá kaupum á öðrum Skota en Billy Gilmour er á leið til félagsins frá Brighton.


Athugasemdir
banner
banner
banner