Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   þri 27. ágúst 2024 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Moukoko samþykkir að ganga til liðs við Nice
Mynd: EPA

Youssoufa Moukoko virðist loksins vera á leið frá Dortmund en hann hefur náð munnlegu samkomulagi við Nice.


Moukoko er mjög ósáttur hjá Dortmund og hefur tjáð sig opinberlega um að hann vilji fara til að fá fleiri mínútur.

Þessi 19 ára gamli Þjóðverji varð yngsti leikmaður í sögu þýsku deildarinnar er hann kom inn af bekknum fyrir Erling Haaland í nóvember árið 2020 og nokkrum vikum síðar varð hann sá yngsti í sögu Meistaradeildar Evrópu, þá aðeins 16 ára og 18 daga gamall.

Félögin eru í viðræðum en hann mun líklega fara á lán til að byrja með en Nice mun eiga möguleika á að festa kaup á honum síðar.


Athugasemdir
banner
banner