Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
   þri 27. ágúst 2024 20:07
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo skoraði úr aukaspyrnu í sigri Al Nassr
Cristiano Ronaldo er kominn með tvö deildarmörk
Cristiano Ronaldo er kominn með tvö deildarmörk
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo skoraði og lagði upp í 4-1 sigri Al Nassr á Al Feiha í 2. umferð sádi-arabísku deildarinnar í kvöld. Þetta var annað deildarmark hans á tímabilinu.

Ronaldo fór mikinn á síðustu leiktíð og bætti markamet deildarinnar, en virðist stefna að því að gera enn betur á þessu tímabili.

Hann skoraði í fyrsta leik liðsins í síðustu viku og gerði þá annað mark sitt í kvöld.

Portúgalinn lagði upp fyrsta mark Al Nassr fyrir Anderson Talisca áður en hann skoraði sjálfur seint í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Markið kom beint úr aukaspyrnu en enginn leikmaður hefur skorað fleiri aukaspyrnumörk en Ronaldo síðan hann kom í deildina. Mörkin eru fimm talsins.

Marcelo Brozovic og Talisca sáu til þess að gulltryggja sigur Al Nassr með tveimur mörkum á síðustu tíu mínútum leiksins.

Al Nassr er með fjögur stig eftir tvær umferðir.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner