Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
   þri 27. ágúst 2024 23:00
Brynjar Ingi Erluson
Textor hjálpar Everton - Mangala á leið til félagsins
Mynd: Getty Images
Oriel Mangala, leikmaður Lyon í Frakklandi, er á leið til Everton á láni út tímabilið en þetta segir Sky Sports.

Belgíski miðjumaðurinn var keyptur til Lyon í sumar eftir að hafa verið á láni hjá félaginu frá Nottingham Forest síðari hluta síðasta tímabils.

Mangala, sem er 26 ára, hefur ekki tekist að sannfæra Pierre Sage, þjálfara liðsins, í byrjun tímabilsins og því ákvað Lyon að bæta bandaríska landsliðsmanninum Tanner Tessmann við hópinn, en kaupin á honum voru staðfest í kvöld.

Samkvæmt Sky Sports og L'Equipe hefur Lyon samþykkt að lána Mangala út fyrir lok gluggans en hann er að semja við Everton á Englandi.

John Textor er eigandi Lyon en hann er í viðræðum um kaup á Everton. Sem stendur getur hann ekki keypt Everton fyrr en hann hefur selt hlut sinn í Crystal Palace. Þangað til fer hann öðruvísi leiðir að því að hjálpa félaginu eins og í þessu tilviki.
Athugasemdir
banner
banner
banner