Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   þri 27. ágúst 2024 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýsku meistararnir hafa áhuga á miðjumanni Liverpool
Tyler Morton.
Tyler Morton.
Mynd: Getty Images
Þýsku meistararnir í Bayer Leverkusen hafa sýnt Tyler Morton, leikmanni Liverpool, áhuga.

Sky Sports greinir frá þessu.

Leverkusen vill fá Morton á láni og Liverpool er að íhuga þann möguleika.

Það er talið að Morton sjálfur sé gríðarlega spenntur fyrir þeim möguleika að spila reglulega með Leverkusen og læra af Xabi Alonso, þjálfara liðsins.

Morton átti gott undirbúningstímabil með Liverpool en þessi 21 árs gamli miðjumaður hefur ekki komið við sögu í fyrstu tveimur deildarleikjum tímabilsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner