Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   þri 27. ágúst 2024 20:27
Brynjar Ingi Erluson
Valgeir meiddist í byrjun leiks - Róbert Orri í sigurliði
Valgeir meiddist á 8. mínútu
Valgeir meiddist á 8. mínútu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK-ingurinn Valgeir Valgeirsson meiddist í byrjun leiks í 3-2 Örebro gegn Utsikten í sænsku B-deildinni í kvöld.

Valgeir var eins og venjulega í byrjunarliði Örebro en þurfti að fara af velli á 8. mínútu vegna meiðsla.

Örebro tapaði þessum spennuleik, 3-2, og er sem stendur í 12. sæti með 23 stig.

Birkir Bjarnason kom inn af bekknum í síðari hálfleik er Brescia tapaði fyrir Reggiana, 2-0, í ítölsku B-deildinni. Brescia er með 3 stig eftir þrjá leiki.

Róbert Orri Þorkelsson lék þá allan leikinn í vörn Kongsvinger sem lagði Sandnes að velli, 1-0, í norsku B-deildinni. Kongsvinger er í 6. sæti deildarinnar með 32 stig þegar tíu umferðir eru eftir
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner