Sjö leikir fara fram í 2. umferð enska deildabikarsins í kvöld.
Úlfarnir taka á móti Burnley klukkan 18:30 og þá mætast lið Wimbledon og Ipswich klukkan 18:45.
Cardiff City og Southampton eigast við á sama tíma eins og Colchester og Brentford. Hákon Rafn Valdimarsson gæti þreytt frumraun sína með Brentford.
Tveir úrvalsdeildarslagið eru á dagskrá. West Ham mætir Bournemouth í Lundúnum á meðan Nottingham Forest tekur á móti Newcastle United.
Leikir dagsins:
18:30 Wolves - Burnley
18:45 Wimbledon - Ipswich Town
18:45 Cardiff City - Southampton
18:45 Colchester - Brentford
18:45 Swansea - Wycombe
18:45 West Ham - Bournemouth
19:00 Nott. Forest - Newcastle
Athugasemdir