Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
   mið 28. ágúst 2024 18:05
Ívan Guðjón Baldursson
Þýski bikarinn: Hofmann skaut Leverkusen áfram
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Jena 0 - 1 Bayer Leverkusen
0-1 Jonas Hofmann ('52)

Jonas Hofmann skoraði eina mark leiksins er Bayer Leverkusen lagði D-deildarliðið Jena að velli í þýska bikarnum í dag.

Liðin áttust við í eina leik dagsins í bikarnum og var búist við stærri sigri hjá ríkjandi meisturunum, en eitt mark dugði.

Hofmann skoraði á 52. mínútu eftir stoðsendingu frá Álex Grimaldo sem kom inn í hálfleik, en Xabi Alonso þjálfari hvíldi flesta lykilmenn sína í dag.

Robert Andrich, Jonathan Tah og Edmond Tapsoba voru allir í byrjunarliðinu en Florian Wirtz, Granit Xhaka og Jeremie Frimpong komu inn af bekknum.

Það var lítið um óvænt úrslit í fyrstu umferð bikarsins, þar sem Magdeburg og Bochum voru slegin úr leik af Offenbach og Regensburg á meðan Hannover og Fortuna Düsseldorf voru einnig send heim.
Athugasemdir
banner
banner