Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   fim 29. ágúst 2024 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Everton og Fulham hafa áhuga á Nuamah
Mynd: EPA
Ensku úrvalsdeildarfélögin Everton og Fulham eru að sýna Ernest Nuamah, tvítugum kantmanni Lyon í Frakklandi, mikinn áhuga á lokadögum sumargluggans.

Lyon var með kaupskyldu á Nuamah frá Nordsjælland í sumar, eftir að hafa fengið hann lánaðan fyrir síðustu leiktíð.

Nuamah fékk mikið af tækifærum hjá Lyon en tókst ekki að hrífa þjálfarateymi félagsins nógu mikið, þar sem hann kom að fimm mörkum í 35 leikjum í öllum keppnum.

Nuamah á fjögur ár eftir af samningi við Lyon og verður hann líklegast lánaður út eða seldur fyrir gluggalok.

Nuamah er með 3 mörk í 12 A-landsleikjum fyrir Gana þrátt fyrir ungan aldur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner