Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
   fim 29. ágúst 2024 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ísbjörninn átti ekki möguleika í forkeppni fyrir Futsal
Mynd: KSÍ
Ísbjörninn mætti til leiks í forkeppni fyrir Evrópukeppni félagsliða í innanhússfótbolta, eða Futsal, og tapaði öllum leikjunum í riðlakeppninni.

Ísbjörninn byrjaði á 9-0 tapi gegn Akaa Futsal frá Finnlandi og tapaði svo naumlega 3-1 fyrir Tirana Futsal frá Albaníu, áður en Íslendingarnir steinlágu á móti TSV Weilimdorf frá Þýskalandi.

Ísbjörninn endar því með 0 stig og markatöluna 3-19 en riðillinn fór fram í Tirana, höfuðborg Albaníu.

Ísbjörninn er besta lið landsins í Futsal og er þetta ekki í fyrsta sinn sem liðið keppir í forkeppni fyrir Evrópukeppni félagsliða.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner