Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 01. maí 2011 23:40
Magnús Már Einarsson
Lebron James mætti í Liverpool bol á fréttamannafund
Mynd: Netið
Lebron James, einn besti körfuboltamaður í heimi, vakti athygli þegar hann mætti í Liverpool bol á fréttamannafund eftir að lið hans Miami Heat sigraði Boston 99-90 í úrslitakeppni NBA í kvöld.

James keypti á dögunum lítinn hlut í Liverpool og hann segist fylgjast með gangi mála á Anfield.

,,Ég er að fylgjast með Liverpool," sagði James á fréttamannafundinum í kvöld.

,,Ég veit að þeir unnu góðan sigur í morgun (gegn Newcastle) og ég fylgist með úr fjarlægð."

James bætti því einnig við að hann stefni á að fara á leik á Anfield í framtíðinni.
banner
banner
banner