Jesus gæti farið frá Arsenal - Möguleg stjóraskipti hjá Man Utd og Bayern - Dortmund vill halda Sancho
   sun 17. maí 2015 23:55
Elvar Geir Magnússon
Heimild: 433.is 
„Ég á allavega miklu meiri pening en þú!"
Bjarni Þór á KR-vellinum í 1. umferð.
Bjarni Þór á KR-vellinum í 1. umferð.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Ýmis orð eru látin flakka milli leikmanna í hita leikja enda rimmurnar ófáar á vellinum. Valsmenn unnu flottan 2-0 sigur gegn FH í kvöld en Bjarni Þór Viðarsson, leikmaður FH, og Kristinn Freyr Sigurðsson, leikmaður Vals voru að kýtast.

433.is er með skemmtilega sögu á vef sínum þar sem Bjarni Þór Viðarsson á að hafa látið áhugaverða setningu falla við Kristin.

„Hann byrjaði á að spyrja Kidda hver hann væri," er haft eftir ónafngreindum leikmanni í röðum Vals á 433.

Eftir einhver orðaskipti sagði Bjarni svo: „Ég á allavega miklu meiri pening en þú!"

Bjarni gekk í raðir FH í vetur eftir að hafa verið í atvinnumennskunni undanfarin ár.

Uppfært: Bjarni Þór segir það af og frá að hann hafi sagt þessa setningu í leiknum í kvöld. „Við áttum í einhverjum orðaskiptum en að ég hafi sagt þetta er eins langt frá því að vera satt og hægt er," sagði Bjarni við 433.is.
Athugasemdir
banner
banner