„Þetta verður sigur. Við eigum eftir að éta þennan völl og vinna þá 2-0!" sagði Böðvar Bergsson brattur þegar Fótbolti.net ræddi við hann í Fanzone fyrir leik Íslands og Portúgals í dag.
„Ég mun tárast yfir þjóðsöngnum. Þetta er stærsta stund okkar í íþróttum," sagði Böðvar.
„Ég mun tárast yfir þjóðsöngnum. Þetta er stærsta stund okkar í íþróttum," sagði Böðvar.
Böðvar er bjartsýnn fyrir mót og lofar því að íslenska liðið fari upp úr riðlinum.
„Ég er pottþéttur á því. Ég lofa því. Við förum í 8-liða úrslit. I promise you!"
Í innslaginu að ofan má sjá stóra treyju sem Böðvar er í núna í Frakklandi en Guðni Bergsson, bróðir hans, spilaði í henni í landsliðinu á sínum tíma.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir