Heimild: mbl.is
Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn segir að engin þörf sé á því að skemmtistaðir fái að vera opnir lengur í kvöld ef Ísland kemst á HM.
Leikurinn sé búinn klukkan 21 og nægur tími sé til að fagna um kvöldið.
„Skemmtistaðir verða ekki opnir lengur. Við munum ekki fá neina heimild til þess," segir Ásgeir í samtali við mbl.is.
Leikurinn sé búinn klukkan 21 og nægur tími sé til að fagna um kvöldið.
„Skemmtistaðir verða ekki opnir lengur. Við munum ekki fá neina heimild til þess," segir Ásgeir í samtali við mbl.is.
Ásgeir segir að lögreglan verði vel mönnuð fyrir leikinn.
„Þarna koma tíu þúsund manns saman og svo er óráðið hvað verða margir á „Fan Zone“. Okkar löggæsla miðar af öllu þessu svæði. Svo veit maður ekkert hvaða stefnu þetta tekur ef leikurinn fer vel. Við þurfum að bregðast vel við því en lögreglan er bjartsýn á þennan leik eins og allir aðrir."
Fótbolti.net er með alla anga úti í umfjöllun um leikinn gegn Kosóvó og hægt er að fylgjast með bak við tjöldin á samskiptamiðlum okkar, þar á meðal Fotboltinet á Snapchat.
Leikurinn verður í beinni textalýsingu hérna
Staðan? Skoðaðu möguleikana í riðli Íslands
Smelltu hér til að sjá líkegt byrjunarlið
Með því að smella hér má hlusta á ítarlega upphitun fyrir leikinn úr útvarpsþættinum
Verið með okkur á þessum RISA leikdegi með því að nota #fotboltinet kassamerkið á Twitter 🇮🇸🇮🇸🇮🇸 pic.twitter.com/gari9vZKs5
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) October 9, 2017
Athugasemdir