Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 11:30
Brynjar Ingi Erluson
„Ég þarf ekki að tala við Ter Stegen“
Mynd: EPA
Deco, yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona, hefur sent skýr skilaboð til þýska markvarðarins Marc-andre ter Stegen.

Barcelona festi kaup á spænska markverðinum Joan Garcia frá nágrönnunum í Espanyol en hann kemur til með að berjast við Ter Stegen um markvarðarstöðuna.

Ter Stegen hefur verið aðalmarkvörður Börsunga síðasta áratuginn eða svo, en gæti nú misst sæti sitt til Garcia.

„Ég þarf ekki að ræða við Ter Stegen. Starf mitt er ekki að ákveða hver spilar heldur að byggja besta mögulega liðið fyrir þjálfarann.“

„Enginn samningur tryggir byrjunarliðssæti. Það er þjálfarinn sem tekur þessar ákvarðanir,“
sagði Deco.

Ter Stegen hefur verið orðaður við tyrkneska félagið Galatasaray síðustu vikur.
Athugasemdir
banner
banner