Gareth Southgate mun ekki taka við pólska landsliðinu en þetta staðfestir Cezary Kulesza, forseti pólska fótboltasambandsins í viðtali við Przeglad Sportowy.
Southgate, sem hætti þjálfun enska landsliðsins eftir EM á síðasta ári, lagði fram umsókn um að taka við Póllandi eftir að Michal Probierz sagði upp störfum.
Það er óumdeilanlegt að Southgate hafi náð frábærum árangri með enska landsliðið. Hann fór með liðið í tvo úrslitaleiki á EM og fór með liðið í undanúrslit HM árið 2018.
Englendingurinn er hins vegar ekki í myndinni hjá pólska sambandinu þar sem hann gat ekki fullvissað stjórnina um að Póllandi muni spila á HM á næsta ári.
„Við fengum umsókn frá honum en við verðum að muna grunnvandamálið sem er að enginn erlendur þjálfari getur tryggt það að við förum á HM. Ég hefði ráðið hann á staðnum ef hann hefði getað fullvissað okkur um það,“ sagði Cezary Kulesza, forseti pólska fótboltasambandsins við Przeglad Sportowy.
Sambandið segist hafa lært af mistökum sínum að ráða erlendan þjálfara er það fékk Fernando Santos til að taka við árið 2023 en hann stýrði liðinu í sex leikjum og var síðan látinn fara eftir slaka byrjun í undankeppni EM.
„Fernando Santos er fullkomið dæmi. Þjálfari sem hefur náð miklum árangri og er stórt nafn sem allir lofsömuðu, en tími hans hér reyndist heldur óvæntur og sársaukafullur fyrir okkur öll,“ sagði hann í lokin.
Athugasemdir