Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   fim 29. ágúst 2024 08:15
Elvar Geir Magnússon
Abraham fer til AC Milan
Abraham er á leið til AC Milan.
Abraham er á leið til AC Milan.
Mynd: EPA
Enski sóknarleikmaðurinn Tammy Abraham er á leið frá til AC Milan samkvæmt ítölskum fjölmiðlum.

Í vikunni var fullyrt að Abraham væri nálægt því að ganga í raðir West Ham en nú bendir allt til þess að hann haldi sig innan Ítalíu.

La Gazzetta dello Sport segir að AC Milan láti Roma fá belgíska vængmanninn Alexis Saelemaekers í skiptum ásamt 10 milljónum evra.

Búist er við því að samningar verði frágengnir síðar í dag. Báðir leikmenn hafa náð samkomulagi við nýja vinnuveitendur.

Saelemaekers lék vel með Bologna þar sem hann var á láni. Abraham skoraði eitt mark í tólf leikjum eftir að hafa jafnað sig á erfiðum hnémeiðslum.
Athugasemdir
banner
banner
banner