Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   fim 29. ágúst 2024 08:40
Ívan Guðjón Baldursson
Kaboré fer til Benfica á láni
Mynd: EPA
Hægri bakvörðurinn Issa Kaboré er á leið til Benfica þar sem hann mun leika á lánssamningi út tímabilið.

Kaboré er 23 ára gamall og er með þrjú ár eftir af samningi sínum við Englandsmeistara Manchester City.

Hann lék á láni hjá Luton Town á síðustu leiktíð og kom við sögu í 26 leikjum en missti af hluta tímabilsins vegna Afríkumótsins og vegna meiðsla.

Benfica fær ekki kaupmöguleika með lánssamningnum.

Kaboré er lykilmaður í landsliði Búrkína Fasó.
Athugasemdir
banner
banner