Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
   fim 29. ágúst 2024 08:45
Elvar Geir Magnússon
Salah: Ég á eitt ár eftir og ætla að njóta þess
Mohamed Salah.
Mohamed Salah.
Mynd: EPA
Mohamed Salah segist einbeita sér að njóta síðasta árs samnings síns við Liverpool áður en hann tekur ákvörðun um framtíð sína.

Þessi 32 ára Egypti hefur ekki gert nýjan samning við Liverpool og gildandi samningur hans rennur út í sumar.

Liverpool hafnaði 150 milljóna punda tilboði frá Al-Ittihad í Salah í september.

„Fyrir tímabilið hugsaði ég: Ég á eitt ár eftir, ég ætla að njóta þess og hugsa ekki um samningsmálin," sagði Salah við Sky Sports.

„Ég vil ekki hugsa um næsta ár eða framtíðina, ég vil bara njóta síðasta árs samningsins og sjá svo til. Mikilvægast er að taka einn dag í einu og vera þakklátur fyrir að vera hérna."

Salah hefur skorað í fyrstu tveimur úrvalsdeildarleikjum Liverpool undir stjórn Arne Slot. Hann hefur unnið nánast allt sem hægt er að vinna hjá Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner