Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
   fim 29. ágúst 2024 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Mögulega rangstæður Bowen skoraði sigurmarkið með hendi
Mynd: EPA
West Ham United sló Bournemouth úr leik í enska deildabikarnum í gærkvöldi með sigurmarki frá Jarrod Bowen skömmu fyrir leikslok.

Bowen fékk þá skot frá Mohammed Kudus í höndina á sér og þaðan fór boltinn í netið.

Dómarateymi leiksins dæmdi markið gilt en það er ekkert VAR í fyrstu umferðum deildabikarsins og því ekki hægt að lagfæra mistökin.

Andoni Iraola þjálfari Bournemouth var svekktur að leikslokum en hans menn lentu einnig fyrir barðinu á rangri dómaraákvörðun í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Mögulegt er að Bowen hafi einnig verið í rangstöðu þegar Kudus hleypti skoti sínu af.

Sjáðu atvikið
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner