Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
   fim 29. ágúst 2024 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjö tilboð í Ben Doak
Mynd: EPA
Sky Sports greinir frá því að Liverpool hafi fengið sjö lánstilboð í Ben Doak. Doak er átján ára og var í vikunni valinn í skoska landsliðið sem mætir Póllandi og Portúgal í Þjóðadeildinni.

Sagt er að áhuginn á Doak komi frá félögum í úrvalsdeildinni og Championship deildinni.

Liverpool hefur gefið Doak grænt ljós á að fara á láni og nú er verið að meta hvaða félag henti honum best upp á spilatíma og hans þróun.

Doak er sóknarmaður sem kom til Liverpool frá Celtic árið 2022. Hann hefur komið við sögu í tíu leikjjum með aðalliði Liverpool frá komu sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner