Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   fim 29. ágúst 2024 10:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ward-Prowse óvænt orðaður við endurkomu til Southampton
Mynd: Getty Images
Það eru nokkuð óvæntar fréttir frá Lundúnum í dag því TalkSport greinir frá því að Southampton hafi fengið tækifæri til að kaupa James Ward-Prowse frá Southampton.

Ward-Prowse er fyrrum fyrirliði Southampton en var keyptur til West Ham síðasta sumar.

Russel Martin, stjóri Southampton, er mikill aðdáandi Ward-Prowse og er möguleiki á því að Southampton nái að krækja í hann fyrir gluggalok.

Möguleiki er á því að Southampton fái hann á láni.

West Ham er tilbúið að missa Ward-Prowse sem félagið borgaði 30 milljónir punda fyrir í fyrra.

Hann er 29 ára og hefur einungis spilað 16 mínútur í fyrstu tveimur leikjum úrvalsdeildarinnar.

Hann var svo í byrjunarliðinu gegn Bournemouth í deildabikarnum í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner