Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   fim 29. ágúst 2024 10:10
Elvar Geir Magnússon
White ekki í hópnum hjá Carsley
Ben White varnarmaður Arsenal.
Ben White varnarmaður Arsenal.
Mynd: Getty Images
Ben White varnarmaður Arsenal verður ekki í enska landsliðshópnum sem verður opinberaður í dag. Frá þessu greina enskir fjölmiðlar.

Bráðabirgðastjórinn Lee Carsley stýrir Englandi í komandi leikjum en Gareth Southgate lét af störfum eftir Evrópumótið.

England mætir Heimi Hallgrímssyni og lærisveinum í írska landsliðinu og svo Finnlandi en báðir leikirnir eru í Þjóðadeildinni.

White hefur ekki verið valinn í enska landsliðið síðan hann yfirgaf hópinn á HM í Katar eftir deilur við Steve Holland sem var aðstoðarmaður Southgate.

Talið var að landsliðsþjálfaraskiptin gætu opnað leið fyrir endurkomu White í enska landsliðið en svo er ekki.

White gaf ekki kost á sér fyrir EM og er staðan sögð óbreytt þrátt fyrir að Southgate sé farinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner