Chelsea verðmetur Jackson á 100 milljónir punda - Rashford efstur á óskalista Barcelona - Sancho til Juventus?
Rúnar: Ætlum ekki að fara grenja yfir því að hafa tapað
Partí á Ísafirði í kvöld - „Vonandi sletta þeir aðeins úr klaufunum"
Alli Jói: Pabbi hringdi í mig og skammaði mig eftir leik
Fyrsta tap ÍR: „Helvíti gróft ef að eitt tap í tólf leikjum sitji þungt í mönnum"
Hemmi fékk góða afmælisgjöf: „Hún gat ekki verið betri"
Reynir Freyr: Gefur okkur mikið að fá Jón Daða
Gunnar Guðmunds: Við erum búnir að fá okkur alltof mörg mörk úr föstum leikatriðum
Árni Freyr: Andleysi leikmanna í hámarki
Jakob Gunnar spilaði sinn síðasta leik fyrir Þróttara: Vildi spila meira
Ingi Rafn: Fyrri hálfleikurinn skóp þennan sigur
Mark tekið af Keflavík vegna rangstöðu: „Bara óskiljanlegt"
Haraldur Hróðmars: Lífsnauðsynlegur sigur
Venni: Það gaf okkur blóð á tennurnar
Sandra María: Gáfum líkama og sál en það skilaði engu
Hlín kom frábær inn - Svekkt með hlutverkið sitt
Sveindís: Hann kemur samt þegar ekkert er undir
Glódís svekkt: Leyfðum henni að gera nákvæmlega það sem hún vill
Guðrún: Fæ gæsahúð í hvert skipti
Ingibjörg lýsir sorgarferlinu - „Þetta er ömurleg tilfinning"
Dagný: Að öllum líkindum mitt síðasta Evrópumót
banner
   mán 16. maí 2016 21:40
Jóhann Ingi Hafþórsson
Kaplakrika
Bjarni: Eigum við ekki að segja að þetta var markið mitt?
Bjarni Þór átti mjög fínan leik hjá FH í kvöld.
Bjarni Þór átti mjög fínan leik hjá FH í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Þór Viðarsson, leikmaður FH var mjög kátur eftir 2-0 sigur á Fjölni í kvöld, í 4. umferð Pepsi deildarinnar.

Miðjumaðurinn átti stóran þátt í fyrsta markinu sem var skráð sem sjálfsmark.

Lestu um leikinn: FH 2 -  0 Fjölnir

„Ég snerti boltann, ég flikkaði honum í öxlina á einhverjum. Ég fagnaði, það þurfti einhvern til að ná þessari snertingu til að boltinn færi inn. Eigum við ekki að segja að þetta hafi verið markið mitt?"

Hann er þokkalega sáttur við níu stig úr fyrstu fjórum leikjunum.

„ Það var svekkjandi í síðasta leik á móti KR, við hefðum viljað fá meira út úr því en níu stig er nokkuð gott."

Bjarni segir dómarann ekki hafa verið viss, hver hafi átt fyrsta mark leiksins.

„Ég spurði Ívar dómara og hann var ekki viss. Það væri fínt að vera kominn með tvö mörk eftir fjóra leiki."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner