Hugo Larsson þykir öflugur og er orðinn mikilvægur hlekkur í liði Frankfurt ásamt því að vinna sér inn sæti í sænska A-landsliðinu.
Eintracht Frankfurt 2 - 0 Borussia M'Gladbach
1-0 Hugo Larsson ('31)
2-0 Omar Marmoush ('80)
1-0 Hugo Larsson ('31)
2-0 Omar Marmoush ('80)
Eintracht Frankfurt tók á móti Borussia Mönchengladbach í síðasta leik dagsins í efstu deild þýska boltans.
Sænski miðjumaðurinn Hugo Larsson kom Frankfurt yfir með eina markinu sem var skorað í fyrri hálfleik.
Gestirnir frá Gladbach komust nokkrum sinnum nálægt því að jafna en tókst ekki. Þess í stað innsiglaði Omar Marmoush sigur heimamanna með marki á 80. mínútu og urðu lokatölur 2-0 fyrir Frankfurt.
Frankfurt er í þriðja sæti deildarinnar með 9 stig eftir fjórar fyrstu umferðirnar á nýju tímabili.
Gladbach er aðeins komið með 3 stig.
Athugasemdir