„Þetta er ólýsanleg tilfinning. Þetta er það besta sem ég hef gert á ævinni. Það er ekki hægt að lýsa þessu, þetta er geðveikt.“ sagði Bjarni Aðalsteinsson, leikmaður KA, eftir 2-0 sigur á Víking Reykjavík í úrslitaleik Mjólkurbikars karla á Laugardalsvelli í dag.
Lestu um leikinn: KA 2 - 0 Víkingur R.
Bjarni segir að KA hafi átt sigurinn skilið miðað við færin sem þeir fengu.
„Við fengum góð færi í fyrri hálfleik. Mér leið aldrei illa á vellinum. Við vorum með gott leikskipulag og héldum því. Mér leið mjög vel.“
KA tapaði í úrslitaleiknum í fyrra gegn Víking en Bjarni segir að tilfinningin sé geggjuð.
„Tilfinningin er geðveik. Ég var meiddur í fyrra og missti af leiknum. Það er geðveikt að koma hingað og allir Akureyringarnir mættir, þetta er geðveikt.“
Hvernig hefur þetta tímabil verið fyrir KA og hversu gaman er að ná þessum árangri?
„Við byrjuðum illa en við vissum alltaf af þessum leik. Að gera þetta og skrifa söguna með KA er geðveikt. Besti dagur lífs míns.“
Steinþór Már Auðunsson eða Stubburinn, markmaður KA, átti stórvörslu undir lok leiks en þegar flautað var til leiks loka hlupu leikmenn KA til hans og fögnuðu með honum.
„Varslan sem hann tók á 94. mínútu, hann er kóngurinn, ég elska hann.“
Viðtalið við Bjarna má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.