KA urðu í dag Mjólkurbikarmeistarar þegar þeir lögðu Víkinga af velli á Laugardalsvellinum.
Lestu um leikinn: KA 2 - 0 Víkingur R.
„Það er kannski eitthvað sem maður er búin að vera leyfa sér að dreyma um síðustu kannski þrjú tímabil. Það var súrt síðustu tvö en loksins hafðist þetta og við erum ekkert eðlilega stoltir í dag." Sagði Jakob Snær Árnason leikmaður KA eftir sigurinn í dag.
„Mér fannst við bara byrja þetta af krafti og einhvernveginn þá hefðum við bara getað bætt meira við ef eitthvað er. Síðan bara þróaðist leikurinn og auðvitað fengu liðin sín færi en heilt yfir þá held ég að við höfum átt þetta meira skilið og hefðum jafnvel getað unnið þetta enn stærra."
KA innsiglaði sigurinn þegar það var langt liðið fram yfir uppgefinn uppbótartíma.
„Þá vissi maður að þetta væri komið og það bara ruku allir af stað. Maður er bara ennþá að ná þessu og ég held að tilfinningarnar eigi eftir að rigna meira yfir mann seinna þegar maður fer að endurupplifa þetta."
„Þetta eru mómentin sem að maður dreymir um og maður er í þessu fyrir svona móment. Bæði þetta og deildina og Evrópa og allt þetta. Ótrúlega sætt að ná að klára þetta loksins og tala nú ekki um þessa sögu, að skrifa söguna."
Nánar er rætt við Jakob Snær Árnason í spilaranum hér fyrir ofan.