Everton hefur náð munnlegu samkomulagi við hollenska bakvörðinn Kenny Tete en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu um mánaðamótin er samningur hans við Fulham rennur út.
Tete er 29 ára gamall og spilað með Fulham síðustu fimm árin en áður lék hann með Ajax og Lyon við góðan orðstír.
Á þessum fimm árum spilaði hann 121 leik með Fulham, þar af 22 leiki á síðasta tímabili.
Samningur kappans við Fulham rennur út um mánaðamótin og er þegar ljóst að hann verður ekki áfram þar, en hann mun hins vegar spila áfram í úrvalsdeildinni.
Tete hefur náð samkomulagi um að ganga í raðir Everton og mun gera þriggja ára samning. Fabrizio Romano fullyrðir þetta á samfélagsmiðlinum X í dag.
Öflug viðbót við hópinn hjá Everton ef Tete nær að halda sér heilum, en hann missti af 59 leikjum vegna meiðsla á tíma sínum hjá Fulham.
Athugasemdir