Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   fim 29. ágúst 2024 17:30
Elvar Geir Magnússon
Albrighton búinn að leggja skóna á hilluna
Mynd: Getty Images
Marc Albrighton hefur tilkynnt að hann sé búinn að leggja skóna á hilluna, 34 ára gamall.

Þessi fyrrum vængmaður Aston Villa var í áratug hjá Leicester City og hjálpaði liðinu að vinna enska meistaratitilinn óvænt árið 2016.

Hann lék aðeins tólf leiki á síðasta tímabili, þegar Leicester komst aftur upop í deild þeirra bestu. Að loknu tímabilinu yfirgaf hann félagið.

Marc Albrighton lék yfir 300 leiki fyrir Leicester og auk þess að verða Englandsmeistari með félaginu þá vann hann FA-bikarinn 2021.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner