Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   fim 29. ágúst 2024 12:38
Elvar Geir Magnússon
Fiorentina að vinna Everton í baráttunni um Mangala
Mynd: Nottingham Forest
Sky Sport á Ítalíu heldur því fram að Orel Mangala, miðjumaður Lyon, hafi valið Fiorentina fram yfir Everton.

Íþróttafréttamaðurinn Gianluca Di Marzio segir Fiorentina vera að vinna baráttuna um þennan 26 ára miðjumann en fyrr í vikunni var útlit fyrir að hann færi til Everton.

Enska félagið mun þó ekki vera búið að gefa upp vonina um að fá Mangala.

Mangala er fyrrum leikmaður Nottingham Forest og hefur leikið nítján landsleiki fyrir Belgíu. Hann gæti farið á lánssamningi frá Lyon.

Væntanleg koma Mangala þýðir að Sofyan Amrabat verður væntanlega seldur frá Fiorentina en það hefur verið nóg að gera á markaðnum hjá ítalska félaginu. Í sumar fékk Fiorentina meðal annars Albert Guðmundsson til sín.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner