Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
banner
   fim 11. júlí 2024 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Allt sauð upp úr í Bandaríkjunum - Leikmenn slógust við stuðningsmenn til að vernda fjölskyldur sínar
Darwin Nunez var fljótur upp í stúku
Darwin Nunez var fljótur upp í stúku
Mynd: EPA
Hér má sjá Nunez og þá má sjá glitta í Ronald Araujo og nokkra aðra leikmenn
Hér má sjá Nunez og þá má sjá glitta í Ronald Araujo og nokkra aðra leikmenn
Mynd: Getty Images
Nunez huggar ungan son sinn eftir öll lætin
Nunez huggar ungan son sinn eftir öll lætin
Mynd: Getty Images
Það vægast sagt sauð allt upp úr eftir leik Kólumbíu og Úrúgvæ í undanúrslitum Copa America í Charlotte í Bandaríkjunum í nótt.

Mikill hiti var í leiknum sjálfum og var rífandi stemning í stúkunni, en þegar flautað var til leiksloka þá hækkaði hitastigið heldur mikið.

Stuðningsmenn Kólumbíu voru í miklum meirihluta í stúkunni eða um 90 prósent.

Lítill hluti af stuðningsmönnum Úrúgvæ fóru að slást við kólumbíska stuðningsmenn.

Kólumbíumennirnir köstuðu flöskum og öðru eins í átt að stuðningsmönnunum, en þar voru eiginkonur og börn leikmanna úrúgvæska landsliðsins.

Darwin Nunez, leikmaður Liverpool og Úrúgvæ, var fljótur að koma sér upp í stúku og eltu nokkrir leikmenn. Nunez reyndi að koma þeim frá fjölskyldunum og lenti þar í áflogum.

Fékk hann eitt þungt högg en það sá ekki á honum í myndbandi sem var birt um klukkutíma eftir atvikið. Óvíst er hverjir eftirmálarnir verða í þessu máli.

„Þetta er stórslys. Fjölskyldur okkar voru í hættu. Við þurfum að fara upp í stúku til að fjarlægja ástvini og lítil börn. Sum sem voru kornung. Þetta er eitt stórt stórslys. Það var ekki einn lögreglumaður á svæðinu,“ sagði Jose Maria Gimenez, fyrirliði Úrúgvæ, eftir leikinn.



Leikmenn náðu að koma fjölskyldumeðlimum niður á völl og í öryggi. Skelfilegar kringumstæður og arfaslök gæsla hjá Bandaríkjamönnum sem munu halda HM eftir tvö ár.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner