Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
   fim 11. júlí 2024 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Arsenal samþykkir tilboð Lazio í Tavares
Mynd: EPA
Arsenal hefur samþykkt 4,2 milljóna punda tilboð Lazio í portúgalska bakvörðinn Nuno Tavares.

Þessi 24 ára gamli leikmaður spilaði aðeins tólf leiki með Nottingham Forest á láni frá Arsenal á síðasta tímabili.

Hann var keyptur frá Benfica árið 2021 og spilaði fyrstu leiktíðina með Arsenal, en hefur ekki verið í náðinni hjá Mikel Arteta síðan.

Arsenal hefur nú samþykkt 4,2 milljóna punda tilboð ítalska félagsins Lazio í Tavares. Auk þess mun enska félagið fá 20 prósent af næstu sölu.

Nú velta félagaskiptin á því hvort Tavares nái samkomulagi við Lazio um kaup og kjör.
Athugasemdir
banner
banner
banner